Fallegt af ykkur
Mikið var gaman að koma heim frá Köben og sjá allar afmæliskveðjurnar - takk takk takk. Já, ég hef afrekað það að verða 31 árs aftur, og það án mikilla hrakfalla. Þó tókst mér bæði að brenna mig og skera mig við það að baka afmæliskökuna okkar Auju sem einnig átti afmæli. Sama dag átti Ingólfur 41 árs afmæli og kisan hennar Ástu átti 5 kettlinga. Ekki má svo gleyma Óla, pabba hans Sigga, Svönu Dóru systur Áka og Vincent van Gogh. En nú verð ég að kveðja og vinna því mikið liggur við.
3 Comments:
Magnað að þú skyldir muna eftir honum pabba gamla í þessari upptalningu. Hugsa að hann gleymi þessu meira að segja stundum sjálfur.
hæ og hó gott fólk ! velkomin í kuldapollinn. bjallið í kaffi við tækifæri ?
svo átti Laufey aðvitað afmæli líka einmitt apríl hinn fimmta.
Skrifa ummæli
<< Home