Helga Soffia

Karibuni

föstudagur, mars 11

öppdeiteringunni um að kenna?

Sá að blogspot var að monta sig að hafa öppdeitað kommentakerfið - höff! Það er nú frekar eins þeir hafi slátrað því. Það virðist ekki vera hægt að kommenta á þessu lengur, prófaði hjá Sölva, Sigga, tengdapabba og sjálfri mér: The blog you are looking for can not be found.
Ég var orðin desperat var að spá í að fara að klæmast og ganga fram af fólki til að fá komment, en nú get ég áfram verið góð stúlka - nema Wonderwall gítar fíflið komi aftur þá er líklegt að ég fari að brýna hnífana í eldhúsinu... Nema ég kyrki hann með G-strengnum - hans sko, ekki mínum.

5 Comments:

At 8:22 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Er hann eitthvað í líkingu við String-Emil?

 
At 11:37 f.h., Blogger HelgaSoffia said...

Nei, þá væri ég auðvitað bara í góðum fíling. Þú sérð þetta fífl ábyggilega þegar þú kemur.

 
At 6:01 e.h., Blogger huxy said...

hann emil hefur glatt mig og mína mjög. mér finnst hann yndislegur, annars bara gaman að lesa hugleiðingar þínar, fröken.

 
At 7:31 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

G-string theory?

 
At 9:02 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Helga, Emil er frábær, sögðum þér líklega að hann var í viðtali á DR um daginn. En þýðandinn er að reyna að ná í Sölva! Hann verður að hafa samband, Sölvi, núna!!! Er að reyna að ná í ykkur.

 

Skrifa ummæli

<< Home