Helga Soffia

Karibuni

þriðjudagur, febrúar 1

bargeindílar

Hæ vildi bara biðja ykkur um að láta mig vita ef þið sjáið einhverja bargeindíla til Austur Evrópu (Prag, Budabest, Ljublana, Belgrad etc) því við Sölvi þurfum að fara til Belgrad í byrjun maí að halda upp á brullaup Gumma og Kaju - Gummi ég fatta ekki alveg samt þetta fyrirkomulag, hversvegna ætlið þið að gifta ykkur áður en að við komum? Mér finnst það megasvekkur.

3 Comments:

At 11:33 f.h., Blogger Króinn said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 12:38 e.h., Blogger Króinn said...

Við Róbert Marshall öxlum okkar ábyrgð. Gerði þau stórkostlegu mistök áðan að setja inn komment um link á lággjaldaferðir í Bosníu í stað Serbíu. Hélt samt að öll slóð kommentsins myndi hreinsast út þegar ég eyddi því en ekki stæði eftir einhver slóð þar sem segði að ég hefði sjálfur hreinsað út komment. En gott og vel. Annars var ég að reyna að muna eftir einhverri síðu sem Iceland Express benti á um daginn þar sem hægt er að leita hjá öllum evrópsku lággjaldaflugfélögunum í einu að því hvernig má samræma ferðir með þeim víða um álfuna milli fjarlægustu staða. Ef hún rifjast upp fyrir mér þá læt ég vita.

 
At 5:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Helga mín!
Viltu senda mér aftur emailið hennar Öglu? Ég er svo utan við mig þessa dagana að ég týndi því :( Afsakið að ég skuli ryðjast inn á þetta komment án þess að geta aðstoðað í ferðaplönum!
Knús,
Auður.

 

Skrifa ummæli

<< Home