Helga Soffia

Karibuni

þriðjudagur, desember 21

Bein útsending

Halló halló! Hér er bein útsending frá Edinborg. Tengdapabbi var að koma hingað inn og er nú að rífa upp úr töskunum: 3 stykki af reyktum silung (Veiðivatnasilungur), þurrkað læri, harðfiskur, RIIIIISA jólapakki, grjónagrautamix, meiri pakkar (vei), hmm spennandi umslag stílað á sör sigurð frá tengdó(vakti mikla lukku), vei, appollolakkrís, síríus súkkulaði, ORA grænar baunir, annað nammi sem ég sé ekki alveg hvað er (sennilega eitthvað nýtt), koníak, rioja rauðvín, jóladagskránna frá Selfossi, annar pakki... mega spennó. Jæja nú er ég farin að hengja upp jakkafötin svo hann geti verið fínn á jólunum.

4 Comments:

At 1:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

JAMBO!
EH EH EH! It is ravrí túh bí eibú tú forroh joh akktivitís in Skotrand rækí ðís!
... var að skoða tenglana þína áðan, Unnur var hjá mér þegar ég smellti á "Ikke til at tro" og þegar fyrsta myndin kom up hrópaði hún "HANN ER MEÐ KLUKKU!!" því að armbandsúrið hans er auðvitað það fyrsta sem maður tekur eftir ;o)

 
At 3:06 e.h., Blogger HelgaSoffia said...

EH EH it is fery nice to see your comment, Mama Unna, I am fery grad. Yes.

 
At 7:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hitti Emblu og Ingó í Eymundsson áðan og þau voru með hinn undurfagra Úlf með sér. Jesús minn hvað hann er sætur! Ég gleðst mjög yfir því að þið séuð væntanleg til landsins í janúar. Komið alveg hreint mátulega í post-christmas þunglyndið sem er ekki slæmt vegna þess að svoleiðis stemmningu hlýtur óhjákvæmilega að fylgja soldið vínsull og djúpar pælingar, ekki satt? Knús, Auður Rán.

 
At 12:10 e.h., Blogger HelgaSoffia said...

satt mikið satt. Já, Úlfur frændi minn er stórfallegur drengur...sjá bara linkinn hérna við hliðina.

 

Skrifa ummæli

<< Home