Helga Soffia

Karibuni

laugardagur, mars 24

Nei, sko - það rignir enn

Haldiði ekki að ég sé bara ekki aftur komin inn á blogger sem er allur en francais hjá mér þessa dagana! Mais það var nú svo sem ekkert merkilegt sem ég ætlaði að segja, Embla kom hingað frá Spáni síðustu helgi og gerði allt vitlaust, le soleil stakk okkur af og í staðinn fengum við blautan, þæfðan himinn sem meig út úr sér ýmist rigningu eða slyddu á milli þess sem hann grýtti borgarbúa með hagli. Sacre Coeur! Eins og Hulda sagði. Blessunarlega er haglið for bi en það rignir enn - quelle domage, hugsið þið en non, þá hangir maður inni og vinnur ... eða horfir á 10 þætti af Heroes eins og við Sölvi gerðum í gærkvöldi. Ég fann þetta á netinu og þar sem við eigum óhemju mikla netinneign og erum á förum þá leyfðum við okkur að glápa á þetta online í gær. Kvöldið minnti á 24 maraþonið á Njallanum í fyrra: "Einn enn?" " Einn enn?" "Einn enn?" "Ok, einn enn." "Einn, og svooo förum við að sofa." Annars lofar BBC bót og betrun í veðurmálum og gengur svo langt að lofa 17°hita og sól eftir helgina. Þá ættum við að geta lagt okkur í garð hérna á miðvikudaginn áður en við höldum til Heathrow í olnæter þar. Terminal 4 - uppeldisstöðvar mínar. Alors, je vais. Merci. A bientôt.

7 Comments:

At 5:05 e.h., Blogger Króinn said...

Gott að heyra frá þér aftur í bloggheimum. Athyglisverð þessi dönskuinnskot í frönskuslettunum. Is there some Danish colony there in Paris there, not?
Kveðjur á belgíska bjórþambarann.

 
At 10:05 e.h., Blogger HelgaSoffia said...

Nein, jeg er bara så kosmopolitan, en hemsborger, savez?

 
At 3:01 f.h., Blogger Asta said...

Ææææ, eruð þið líka dottin í Heroes? Litli Phil gerði mér þann óleik að downloada þessum andskota inn á íbúðarnetworkið. Ég asnaðist svo til á tékka á þessu og maður lifandi, ég gat ekki átt mér líf þar til ég var búin að horfa á alla þættina.

Sacre Coer!!!!! Gott stöff.

Góða ferð til Indlands. Knús frá Edin.

 
At 8:22 f.h., Blogger Króinn said...

...og nú hafa þýskuslettur bæst við. Ekki býð ég í þetta þegar að hindúið bætist við líka eftir oríentalreisuna.
Góða ferð annars austur eftir. Öfunda ykkur ekkert smá.

 
At 5:59 e.h., Blogger Hulda said...

Hallo elsku blomarosin!
Ur tvi ad tu ert a Indlandi og eg veit ekkert hvort tu stingir einherntimann islenska simakortinu tinu i simann ta aetla eg ad nota tennan vettvang til ad oska ter rosalega mikid til hamingju med afmaelid og vona eg ad dagurinn verdi extra godur!! Kvedja fra straetum philadelphiu, og bradum NY, og lika DC ;) \
xxxx
hugs'n'kisses
luv Hulda

p.s. vonandi ad tu tekkir a blogginu tinu svona i tilefni dagsins :)

 
At 10:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Kæra HelgaSi! afmæliskossar úr Brætonstrít!

 
At 11:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hallóóó! hvar eruði nú? ég vil ferðasögur og myndir!! hlakka til að heyra frá þér mín kæra. knús, auðurrán

 

Skrifa ummæli

<< Home