Helga Soffia

Karibuni

laugardagur, apríl 16

andvarp

jæja, nú er ég búin að vera svolítið dugleg. Kveikti meira að segja á þurrkaranum og spældi mér egg. Síðan hef ég horft á hálfan þátt um breskan arkítektúr, pælt í því hvort ég ætti að fara út en ég hætti við - það er ósköp huggulegt heima. Sölvi er farin í púl og skilur mig eftir til að púla heima. Fúla heimað púla... að minnsta kosti að sýn einhverja viðleitni í þá áttina.
Í sjónvarpinu er einn af þessum CSI þáttum þar sem fallegar ofurlöggur segja hvort öðru rosalega ýtarlegar vísindalegar útskýringar á öllu - asnalegustu díalógar í sjónvarpi frá upphafi. Best að ég fari að púla meira.

1 Comments:

At 7:04 e.h., Blogger hosmagi said...

Lítil von til þess að lojerinn fái sér kött fæddan 30. mars ef hann veit ekki hvar hann er. Svona álika og með skil á framtali án veflykils.

 

Skrifa ummæli

<< Home