Helga Soffia

Karibuni

þriðjudagur, janúar 4

the tenant

Sigurbjörg Þrastardóttir kom hingað í dag. Hún ætlar að leigja af okkur íbúðina á meðan við skellum okkur heim í nokkra daga. Sölvi gat ekki tekið á móti henni, hann komst ekki einu sinni fram úr rúminu í dag. Hann var sennilega ekkert svona þunnur um daginn, greyið, heldur kominn með þessa pest. Nú liggur hann fyrir með brennandi hita og veit hvorki í þennan heim né hinn. Ég vona bara að hann hressist fyrir heimferðina, það er hræðilegt að fara svona lasinn í vél... þurrt loft, grenjandi börn, þröngt...
Ég er svöng en nenni ekki að elda. Ég nenni engu. Kannski ég sé að veikjast líka? Nei, andskotinn.
Ég nenni samt ekki einu sinni að blogga...

1 Comments:

At 11:09 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sæl ég aftur - viltu vera svo væn að hafa samband við mig í dag - ég er með hnút í maganum út af þessum textum. Og nú vita það allir sem vilja vita.

ÁK

 

Skrifa ummæli

<< Home