Helga Soffia

Karibuni

miðvikudagur, febrúar 13

Humm?

Gullfiskaminnið ógurlega ... man bara alls ekki hvað ég ætlaði að blogga um ... ef hárið er rakað af ljóskum hætta þær þá að vera vitlausar? Datt þetta svona í hug... kannski ... maður hagar sér ábyggilega öðruvísi þegar maður er sköllóttur, sér í lagi ef hárið var mikill partur af ídentítedinu og jafnvel tól í samskiptum - hver man ekki eftir (ómigod sjónvarpsmarkaðurinn búinn að infiltrera heilabúið) klassíka atriðinu þar sem stúlka/kona tekur hárið niður og tilvonandi/óskandi verandi (er mikið í sagnpælingum þessa dagana) elskhuginn missir andann?
Já, en það var ekki hár sem ég ætlaði að blaðra um. Síður en svo. Helst í fréttum hjá mér er að ég er ennþá með hita og aumingjaleg öll inn í mér, hálfkjökrandi af leiðindum og sljóleika. Samt sem áður tókst mér að fjárfesta (svo hagstætt gengið) í strigaskóm í dag á 15 evrur - þeir ná að vera dömulegir, sportlegir, glamúrus, hálandalegir og pönkaðir allt í senn, nokkuð góð kaup fyrir 15 evrur (og já PV - þeir eru nr. 39). Mér finnst alltaf ágætt að fá sem mest fyrir aurinn. Ansi er mikið af svigum og þankastrikum og þrípunktum og kommum og almennum útúrdúrum á þessu bloggi mínu (bendir kannski til að ég taki vettvanginn ekki alvarlega - nema það sýni að ég búi alls ekki yfir línulegri hugsun), ég er að velta því fyrir mér hvort það sé pirrandi...
Ætli þetta sé ekki gott bara, ágætt í bili svona miðað við að ég steingleymdi hvað ég ætlaði að segja og man það ekki enn.

3 Comments:

At 11:55 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Rakaði ekki Britney af sér hárið? Og hætti að vera ljóska og gerðist fyllibytta og vandræðabarn. Þarna sérðu.

 
At 7:23 e.h., Blogger HelgaSoffia said...

Já, en hún var dökkhærð þegar hún rakaði af sér hárið. Held líka að hún hafi verið fyllibitta og vandræðabarn áður en það sá það enginn því hún sveiflaði hárinu svo fallega.

 
At 8:48 f.h., Blogger Króinn said...

Áfram Britney! Mér fannst það með því kúlaðra sem Britney hefur gert þegar að hún rakaði á sig skalla. Helvíti flott hjá henni.
Það sem kom í framhaldinu var kannski aðeins minna kúl. Aumingja Britney.

 

Skrifa ummæli

<< Home