Helga Soffia

Karibuni

mánudagur, maí 28

Dickflick

Það hefur alltaf farið í taugarnar á mér að bækur og bíómyndir þar sem aðalpersónan er kona skuli flokkast strax undir léttmeti og kerlingamynd/bók - svokallað Chicklit eða chickflick. Reyndar þarf aðalpersónan ekki einu sinni að vera kvenkyns, mynd virðist "falla" niður í chickflickdeildina um leið og kvenpersónur eru fleiri en ein. Markhópurinn er hinsvegar strax almennari þegar karlmenn eru í fyrirrúmi í persónugalleríinu. Ég man t.d. eftir því þegar ég sá um bókaklúbba heima á Íslandi að fá endursenda bókina Matthildur eftir Roahld Dahl á þeim forsendum að það væri ekki hægt að senda strákum stelpubækur. Ég fékk hinsvegar aldrei kvörtun á hinn veginn, Jói og risaferskjan kom til að mynda ekki til baka með álíka orðsendingum. Í gær leigðum við The Sentinel. Hún er um harða karla með byssur. Alvöru dickflick. Eva Longoria fékk svo að vera með svo hún gæti ranghvolft augunum þegar strákarnir sendu one-linera sín á milli um hversu mikil bomba hún er. Ég gafst upp snemma og fór að sofa. Ég er líka leið á því að sjá Michael Douglas krumpast framan í yngri konur.

3 Comments:

At 10:19 e.h., Blogger Króinn said...

Já, það hefur alltaf verið eitthvað sérlega viðbjóðslegt við Michael Douglas að ulla upp í stelpur.
Maður horfir undan með sama ógeðið í maganum og þegar að spænsk ofur-opin pör fara í sleik úti á götu þar í landi.

 
At 3:15 e.h., Blogger Asta said...

Já, Michael Douglas er óttalegur horbjóður!

 
At 3:39 f.h., Blogger Iceland Today said...

Já, heyrðu. Þessu hef ég einmitt pælt í og komist að þeirri niðurstöðu að ég fíla alls ekki svona pungamyndir. Sé þær nákvæmlega sem dickflicks. Vel orðað. Rambo og svona. Tómt testesterón leiðinda krapp.

okbæ

 

Skrifa ummæli

<< Home